Party Star, oh hvað ég verð vinsæl í partýum hér eftir



Keypti mér Party Star í símann minn hjá honum Gunnlaugi stjörnuspekingi og sló inn fæðingardaginn minn. Þetta er persónulýsing af mér. Svei mér þá ef að þetta er ekki bara nokkuð nálægt sannleikanum, eða hvernig ég ætti að haga mér. Hér kemur lýsingin á Helgu Þuríði:


Grunneðli: Ég er víst útsjónasöm, næm og umhyggjusöm, en íhaldssöm og varkár. Þarf að eiga góða fjölskyldu og stunda útivist til að líða vel (Sól í krabba, sólin stjórnar grunneðlinu). Nú er bara að fara að ættleiða börn í öllum regnbogans litum eins og fræga fólkið til þess að eignast mína eigin fjölskyldu, því að ættartréð mitt er orðið ansi gisið. Drífa svo krakkaskarann út úr húsi, í fjallgöngur með liðið.

Tilfinningar og heimili: fæddist þegar tunglið var í fiskamerkinu, það þýðir að ég er næm og með sterkt ímyndunarafl. Þarf sveigjanleika í sambandi við heimili og lífsstíl. Skapandi og fjölhæf.
Engar nýjar upplýsingar fyrir mér

Hugsun: hrein og bein í tali og tjáningu. Föst fyrir og ákveðin hvað varðar skoðanir og viðhorf. Hugsjónakona. Stolt og stórhuga. (Merkúr í ljónsmerkinu) Þetta er allt að koma hjá mér. Langar að mæta Ásgeiri Kolbeins sem er rauðka í afneitun og spyrja hann: Does the carpet match the drapes?? Eða er það bara Kojak stíllinn þarna fyrir neðan belti?

Ástin: næm og tilfinningarík en á til að setja upp varnarskel (þykk skel eins og skeldýrum sæmir). Þarf öryggi.(Öllu má nú öfgera, Helga mín) Tryggur vinur og verndar þá sem að henni þykir vænt um (Venus var statt í krabbanum 14.júlí 1979)

Vinna: fjölhæf og sveigjanleg. Þarf að vera á ferðinni og fást við fjölbreytt verkefni. (Er með fullkomið djobb nú þegar) Pælari sem vill leita þekkinga og miðla upplýsingum. (Hvenær er maður orðinn fullnuma?, gott að halda sér við efnið og læra alla ævi (Mars í tvíburum)


það er bara svona...

Taktu þetta til þín

ADHD hjá fullorðnum

Úr ritinu Understanding, Supporting and Improving Outcomes for Individuals with ADHD

Flestir þeir sem greinast með ADHD (athyglisbrest með/án ofvirkni) glíma alla ævi við ýmis einkenni vandans og í mismunandi miklum mæli. Mikill hluti fullorðinna sem greinst hefur með ADHD glímdi árum saman við röskun sem ekki var vitað að væri til. Þessi hópur hefur því orðið að búa við ýmsar rangar greiningar og hefur oft fengið á sig rangan og óréttlátan stimpil vegna misskilnings.

Stundum áttar fullorðið fólk sig á að það er með einkennin sjálft og leitar greiningar eftir að barn þess hefur greinst með ADHD. Algengt er þó að fullorðnir haldi bara áfram að glíma við þau einkenni sem hamla þeim í leik og starfi án þess að leita sér hjálpar í frumgreiningu, greiningu og viðeigandi meðferð.

Vitað er að ADHD geta fylgt ýmsir örðugleikar sem rekja má til slakrar sjálfsstjórnar og hæfileikans til að stjórna atferli sínu. Hér verða talin upp nokkur þeirra atriða sem margir fullorðnir með ADHD glíma við:

  • Gagnrýni og neikvæð endurgjöf
  • Neikvæðar tilfinningar (sektarkennd, skömm, léleg sjálfsvirðing, reiði, örvænting)
  • Erfiðleikar með skipulag og tímastjórnun
  • Félagslegir örðugleikar og samskiptavandi
  • Fjárhagsleg vandræði
  • Tíð vinnuskipti
  • Erfitt að vinna sig upp í starfi
  • Vandræði á vinnustað
  • Óánægja í starfi (rangt starf valið)
  • Nær ekki þeim árangri í starfi sem við má búast
  • Þunglyndi, angist og aðrar persónuleikaraskanir og námsörðugleikar eru algengari en hjá samanburðarhópi
  • Notkun og misnotkun vímugjafa algengari en hjá samanburðarhópi
  • Sambúðarvandamál
  • Ala þarf upp eitt eða fleiri börn með ADHD og jafnvel fylgiraskanir líka þótt fólk hafi í raun nóg með sjálft sig

Svartsýn


Djöfullinn maður, nú er útlitið svart.
Ég á engin föt, bara svarta hrúgu inni í skáp og þetta rennur allt saman í eina heild.
Ég verð að fara og kaupa mér föt í sjálflýsandi litum svo það sé hægt að klæða sig í eitthvað...bara eitthvað

Ölver og co

Væri til í bjór þegar ég svona girnilega auglýsingu

Hvað er nafnaló?

Ló eða kusk í nafla samanstendur einkum af stökum trefjum úr fatnaði ásamt svolitlu af dauðum húðfrumum og líkamshárum. Sviti límir svo þessi efni saman í hnoðra. Samkvæmt rannsóknum Karls Kruszelnickis við Háskólann í Sydney í Ástralíu, virðist naflaló frekar berast upp frá nærfötum frekar en niður frá skyrtum og bolum öfugt við það sem mætti ætla. Flutningurinn stafar af núningi húðar við nærföt og í kjölfarið togi líkamshára í stakar trefjar úr nærfötunum upp í naflann.

Leyfið börnunum að koma til mín

Stjörnuspá

KrabbiKrabbi:
Hvort sem þín eigin börn dýrka þig og dá eða bara vinir þínir sem líta upp til þín, þá er það þessi umhyggjusama ára þín sem dregur fólk að þér.

Re-mix

Stenka


Ég lykta svo illa að ég prufaði nýjan ilm í gær sem ég held barasta sé ekkert svo slæmur. Virkar samt ekki sem veiðivatn þó...
-þetta er svona unisex ilmur

Rachel: See? Unisex.
Joey: Maybe *you* need sex. I just had it a few days ago.
Rachel: No, Joey, U-N-I-sex.
Joey: I wouldn't say no to that.