er ég kem heim í...

Er komin á heimaslóðir og er í góðu atlæti hjá gamla settinu. Þetta er ágætis tilbreyting frá námsmannalífinu. Er bara að tjilla með öllara í þessum töluðum orðum. Er á leiðinni í SJALLANN í Isafjördur down town til þess að taka þátt í einhverjum róna leik sem ber heitið Drekktu betur. Læt ekki slíkt tilefni framhjá mér fara. Sigurliðið hlýtur 2 bjórkassa að launum fyrir að vera ekki alltof drukkin í spurningaleik. Þangað til .........zzzzzzzzzz

Hangi löngum stundum

Ég á mér lítið líf þessa dagana, er nú byrjuð í próflestri fyrir stærðfræðipróf á miðvikudag. Það er það eina sem ég þarf að gera í næstu viku, þannig að ég var að pæla, fyrst að ég þarf ekkert að mæta í tíma fyrr en eftir viku, að skella mér á Hótel Mömmu í nokkra daga. Ég sakna Týru minnar aðallega.
Ákvað að prufa að blogga af því að mér finnst ég hafa nægan tíma til þess. Kann kannski ekki alveg nógu vel á þetta allt saman, er að reyna að klóra mig áfram í þessu alein. Það ætlar að vera eitthvað rosa flókið að setja inn myndir hjá mér en vonandi finn ég útúr því fljótlega.