Hangi löngum stundum

Ég á mér lítið líf þessa dagana, er nú byrjuð í próflestri fyrir stærðfræðipróf á miðvikudag. Það er það eina sem ég þarf að gera í næstu viku, þannig að ég var að pæla, fyrst að ég þarf ekkert að mæta í tíma fyrr en eftir viku, að skella mér á Hótel Mömmu í nokkra daga. Ég sakna Týru minnar aðallega.
Ákvað að prufa að blogga af því að mér finnst ég hafa nægan tíma til þess. Kann kannski ekki alveg nógu vel á þetta allt saman, er að reyna að klóra mig áfram í þessu alein. Það ætlar að vera eitthvað rosa flókið að setja inn myndir hjá mér en vonandi finn ég útúr því fljótlega.

1 ummæli:

Helgan sagði...

Skóli og aftur skóli...en smá djamm inn á milli. 2 kvöld í röð nota bene.