Já hérna, tíminn bara æðir áfram. Vikan búin og ég á leiðinni á árshátíð LBH annað kvöld. Þegar ég vil gera mig fína vil ég amk fara í einn ljósatíma og eini staðurinn hér sem er með ljósabekk er íþróttamiðstöðin í Borganesi. Fínn bekkur en byggingin er forljót- sami arkitekt hlýtur að vera, og hannaði íþróttahúsið í Bolungarvík! Það fór um mig hrollur, þó ekki sælu, heldur minntist ég þess með hryllingi þegar maður eyddi heilum laugardegi í gamla daga á Íþróttahátíðinni í gaggó. Alltaf var jafn mikill rígur á milli Íso og Bolo. Blendnar tilfinningar, ekkert sérstaklega gaman þarna, skemmtilegra var þegar maður fór á ball og drakk frá sér rænu með matskeið af vodka útí kók í "bauk". Kannski var þetta ímyndunarfyllerí en þau eru langbest- minni timburmenn.
Svo er víst systursonur Kristínar Sverris hér í skólanum, en hún kenndi okkur einmitt á þessum árum, man samt helst eftir því að vera spila spil frekar en að fá fræðslu. Ég man ekk einu sinni hvaða fag hún kenndi, en hún var allavegana mikill kynjakvistur. Ég á eftir að spyrja hann frekar spjörunum úr, eins og hvað varð eiginlega um hana Stínu og líka hann Chris Búndú eða hvað sem hann nú hét.
En nóg af fortíðarþrá, framtíðin er morgundagurinn í einhverju félagsheimili í Hvalfirði. Maður skellir sér bara út í djúpi laugina, því ég veit ekkert hvað má búast við nema : hittast smá pre-ball, skella sér í rútu, mæta uppstrílaður og borða fínan mat, og hljómsveit spilar. Á maður að fara í kjól og hæla eða eru tútturnar og lopafílingurinn málið?
![]()
flassbakk
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

1 ummæli:
Sæl Helga mín,
vonandi fara þau vel með þig þarna á Eyri roksins (við komum sko frá Eyri lognsins). Þetta er tótal kjóla-hæla dæmi sko, ég tala af reynslu. Láttu það samt ekkert halda aftur af þinni innri konu, hún á einmitt að koma út þarna! Og svo segi ég bara góða skemmtun á Vorspiel, Árshátíð og Nachspiel. Mundu bara hvað þú ert heppin, stutt að labba heim ef þú endar annarsstaðar en heima hjá þér!!
Kveðja frá Osló
Sigga Gísla.
Skrifa ummæli