gleðinnar dyr og mottan

Nú sit ég hér nokkuð þreytt og smá þunn og reyni að blogga, það tekur illilega á að vaka svona frameftir. Árshátíðin lukkaðist ágætlega og ég drakk óhemju magn af áfengi. Stútaði heilli rósavín(sofnaði ekki ofaní desertinn!) og drakk 9 bjóra frá kl 18 til ca3. Tók meira að segja í vörina eins og alvöru bóndi. Þrátt fyrir þetta óhemjumagn var ég ekki einu sinni "kennd"! Vegir Bakkusar eru órannsakanlegir skal ég segja þér. Hef nú drepist við minna magn en þetta. Fer kannski eftir líkams ástandi en eftir að vera búin að drekka í 12 ár hef ég ekki enn lært hvað skal gera og ekki gera. Þeir sem þekkja mig vita þetta, en ég á baki skrautlegan feril í þessum málum.
Kíkti í eftirpartý á nemendagörðunum hjá stuðboltunum í búvísindunum, þar var lifandi músík, einhver gaur með gítar, hann leit alveg eins og rauðhærður Guðni Ágústson með krullur, á mínu reki- hlýtur að vera skyldur honum. Á annars Landbúnaðarráðherrann ekki einhver 15 systkini og líklegt að þetta sé frændi hans -eða hvað? Sigurður FF lét sig ekki vanta og mætti með forláta bongótrommur úr vísundahúð. Þetta fór vel í mannskapinn. Ég vildi að ég væri svona partýljón og hrókur alls fagnaðar en þegar klukkan er að verða 6 um morguninn fer Óli lokbrá að kalla mann til sín og þá er maður nú ekkert líklegur til stórræða. Gat þetta í gamla daga en ekki núna langt gengin í þrítugt -það er byrjað að slá svakalega í mann!
Jæja, nú þarf ég að fá mér þynnkumat, sem er gömul túnfisk samloka. Að því loknu ætla ég að halla mér aðeins svo að ég geti einbeitt mér að náminu.
p.s. birt án ábyrgðar á stafsetningarvillum

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

jà ætli thetta hafi bara ekki verid hann Stefàn Geirsson (Geir Àgùstsson) glìmukòngur med meiru.

Sigga

Helgan sagði...

Helduru bara ekki að hann hafi verið á forsíðunni á Grapevine blaðinu, í öllum sínum glímuskrúða. Blaðið er búið að vera fyrir augunum á mér í margar vikur og ég fattaði þetta ekkert.