Taka tvö

Nú er maður aldeilis endurnærður eftir helgina, sem ég eyddi faðmi stórfjölskyldunnar vestur á Ísafjördur City. Litla prinsessan fékk nafnið Dagbjört Stjarna, þið getið fundið hana á Barnalandi.is ef þið viljið skoðana. Ég kynntist líka fjölskyldunni hans Davíðs, þau vildu meira að segja taka mig í fóstur aðfaranótt mánudagsins þegar ég þurfti að vera í Bænum. Þau eru mjög svo fín og líka allt heima hjá þeim. Náði meira að segja að hitta flesta af "Rokk" fjölskyldunni á Seltjarnanesi, af því að ég var dregin á barnadanssýningu á sunnudeginum. Um kvöldið skellti ég mér á hina óborganlegu Bridget Jones, sem var ágætisafþreying. Gömul og kunnuleg lög -einnig söguþráðurinn...
Á Hvanneyri tekur svo alvara lífsins við, á Heimavist dauðans. Finnst ykkur ekki gott að koma heim og láta hrossaskítsilminn úr sturtuniðurfallinu taka á móti ykkur þegar þið opnið hurðina? Fyrr má nú rota en dauðrota, þetta er nú meiri mínus heldur en "kjöt-í-myrkri" dæmið í hverju hádegi !! Kemur fyrir að það er dulbúinn fiskur og annar matur sem er ómögulegt að rekja, réttara sagt vill ekki vita. Skolað svo niður með skólpi til þess að fá koffín skammtinn sinn, það er ekki eins og það sé eitthvað brjálað stuð til þess að maður haldi sér vakandi. sei la ví :)

Engin ummæli: