á felgunni
Nú sit ég hér rangeygð af þreytu við tölvuna og reyni að setja saman smá fréttabréf. Svaf í 4 tíma í nótt eftir tæplega sólarhringstörn í stóru hópverkefni sem við skiluðum af okkur í morgun. Við áttum að koma með tillögur að einhverskonar torgi hér á Hvanneyri og í leiðinni tókum við okkur til og breyttum miklu í skipulagi svæðisins. Það er svo erfitt, þegar maður er ókunnugur að átta sig á staðnum, við reyndum að bæta úr því. Þetta var ansi spennandi, því það þyrfti aldeilis að taka til hendinni í skipulagsmálum svæðisins. Við komum með tillögur um að rífa hérna tvö hús og búa til kjarna sem myndi nýtast íbúum, kennurum, nemendum, gestkomandi og ferðamönnum. Þetta verður byggt í kringum "gamla fjósið" og mun bera nafnið "Hvönnin".
Það verður að viðurkennast að þegar við kíktum í heimsókn á Bifröst nú í haust, vottaði fyrir örlítilli öfund í garð nemendasamfélagsins þar. Þar er byggt þétt, öll helsta þjónusta er til staðar, þannig að maður getur bara lagt bílnum langtímum saman. Það sem aðgreinir þessi háskólaþorp er að hjá okkur er aðeins minna um peninga, það hefur allt að segja! Ég ímynda mér að þar sé líka meir skjól fyrir rokinu, sem ætlar öllu um koll að keyra -sérstaklega okkur beljunum á svellinu.

zzz...Ég vona að ég hafi ekki svæft marga með þessu röfli, ég rétt svo næ að halda mér á stólnum, og dreg ýsur eins og mér sé borgað fyrir það.
Hasta la vista
hó, hó, hó
Ja hérna megin, mikið líður tíminn hratt á gerfihnattaöld. Það er óþægilega stutt í jólaprófin hjá mér, eða 11 dagar. Nú þarf helgan að hífa upp um sig buxurnar og bretta upp ermarnar til þess að ná f***ins prófunum. Ég er ein af þeim sem nenna nú ekki alveg að leggja sig 100% fram og útkoman er yfirleitt í samræmi við það. Erfitt að kenna gamalli tík að setjast.
Talandi um hunda, hún elskuleg Týran mín er að gera mömmu alveg hvíthærða heima. Þetta dýr er algjört matargat, og þegar það stendur mikið til í næsta húsi, vill T. dvelja tímunum saman út í garði. Hún sest á sólpallinn og starir í átt að húsinu, nú fyrst að það dugir ekki verður maður nú að prufa að gelta hátt- þá fær maður kannski sendingu að handan til að þagga niður í manni! Þetta klikkaði ekki þegar helgan var að kokka og laga til í ísskápunum.
Þetta háttalag hjá mannfólkinu hefur alið af sér dekudýr og frekjuhund, ég get bara lítið gert í þessu hinum megin á landinu. Bý núna á heimavist en nú er útlit fyrir að ég sé að fara að leigja með náunga sem er einu ári á undan mér í umskinu. Hann er víst draumur í dós, bakar og eldar á milljón og prjónar í hjáverkun. Þá get ég bara legið upp í sófa haft það kósý meðan hann þrælar. Nei djók
Býst við að fara og kíkja á íbúðina hjá honum á eftir, kannski gengur þetta barasta ekkert upp, þá fer ég bara á nemendagarðana og fæ herbergi þar. Allt betra en vistin, nota bene.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)