á felgunni

Nú sit ég hér rangeygð af þreytu við tölvuna og reyni að setja saman smá fréttabréf. Svaf í 4 tíma í nótt eftir tæplega sólarhringstörn í stóru hópverkefni sem við skiluðum af okkur í morgun. Við áttum að koma með tillögur að einhverskonar torgi hér á Hvanneyri og í leiðinni tókum við okkur til og breyttum miklu í skipulagi svæðisins. Það er svo erfitt, þegar maður er ókunnugur að átta sig á staðnum, við reyndum að bæta úr því. Þetta var ansi spennandi, því það þyrfti aldeilis að taka til hendinni í skipulagsmálum svæðisins. Við komum með tillögur um að rífa hérna tvö hús og búa til kjarna sem myndi nýtast íbúum, kennurum, nemendum, gestkomandi og ferðamönnum. Þetta verður byggt í kringum "gamla fjósið" og mun bera nafnið "Hvönnin".
Það verður að viðurkennast að þegar við kíktum í heimsókn á Bifröst nú í haust, vottaði fyrir örlítilli öfund í garð nemendasamfélagsins þar. Þar er byggt þétt, öll helsta þjónusta er til staðar, þannig að maður getur bara lagt bílnum langtímum saman. Það sem aðgreinir þessi háskólaþorp er að hjá okkur er aðeins minna um peninga, það hefur allt að segja! Ég ímynda mér að þar sé líka meir skjól fyrir rokinu, sem ætlar öllu um koll að keyra -sérstaklega okkur beljunum á svellinu.
zzz...Ég vona að ég hafi ekki svæft marga með þessu röfli, ég rétt svo næ að halda mér á stólnum, og dreg ýsur eins og mér sé borgað fyrir það.
Hasta la vista

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Búin að senda kommennt til þín með emil.
Kveðja,
Ísfirðingur.