hó, hó, hó

Ja hérna megin, mikið líður tíminn hratt á gerfihnattaöld. Það er óþægilega stutt í jólaprófin hjá mér, eða 11 dagar. Nú þarf helgan að hífa upp um sig buxurnar og bretta upp ermarnar til þess að ná f***ins prófunum. Ég er ein af þeim sem nenna nú ekki alveg að leggja sig 100% fram og útkoman er yfirleitt í samræmi við það. Erfitt að kenna gamalli tík að setjast.
Talandi um hunda, hún elskuleg Týran mín er að gera mömmu alveg hvíthærða heima. Þetta dýr er algjört matargat, og þegar það stendur mikið til í næsta húsi, vill T. dvelja tímunum saman út í garði. Hún sest á sólpallinn og starir í átt að húsinu, nú fyrst að það dugir ekki verður maður nú að prufa að gelta hátt- þá fær maður kannski sendingu að handan til að þagga niður í manni! Þetta klikkaði ekki þegar helgan var að kokka og laga til í ísskápunum.
Þetta háttalag hjá mannfólkinu hefur alið af sér dekudýr og frekjuhund, ég get bara lítið gert í þessu hinum megin á landinu. Bý núna á heimavist en nú er útlit fyrir að ég sé að fara að leigja með náunga sem er einu ári á undan mér í umskinu. Hann er víst draumur í dós, bakar og eldar á milljón og prjónar í hjáverkun. Þá get ég bara legið upp í sófa haft það kósý meðan hann þrælar. Nei djók
Býst við að fara og kíkja á íbúðina hjá honum á eftir, kannski gengur þetta barasta ekkert upp, þá fer ég bara á nemendagarðana og fæ herbergi þar. Allt betra en vistin, nota bene.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ójá.. helvítis vist. Ég bið EKKI að heilsa Sigurjóni húsverði og Hafdísi fyrrverandi vistarverði.
Hverjum ertu að fara að búa með? Hlyni?
Bæjó
Sigga ex-hvannó

Helgan sagði...

Gaurinn var formally known as Bóbó, núna vill hann láta taka sig alvarlega og kalla sig sínu skírnarnafni: Stefán