-Pimpmobile
Me no likey ; (
- Sturtuhengi sem vefst utan um mann eins og filma utan um matarafganga
- Hælsæri
- Veðrið á Hvanneyri
- Dýnuna á rúminu hjá mér sem er úr 100% rolluull
- Klaufann mig
- Rafmagnaðar peysur sem klæja í þokkabót
- Smá rifnar neglur sem flækjast í öllu sem maður kemur við
- Sjónvarpsdagskránna á helgum
- Þvottavélina hans Stefáns
- Að týna eyrnalokkafestingum eða einum eyrnalokki
- Hálkubletti undir snjósköflum
- Rigning uppá við
- Það sem lítur út fyrir að vera fast land undir fótum en reynist síðan vera dulbúinn pollur og fóturinn fer á kaf- fínt færi fyrir stígvélaða köttinn
Koma svo -þið dyggu lesendur!!
Muna nú að skrifa í mína ágætu gestabók, því að ég hafði svo mikið fyrir því að redda þessu.
pungsveitt
Ef ég væri af hinu kyninu væri ég pungsveitt, en eftir afrek dagsins lekur af mér lýsið. Fór nefnilega í brjálað bandý með nokkrum krökkum. Gaman, og allsekki langar vegalengdir fyrir óvana eins og mig. Kofinn er svipað stór og skátaheimilið heima, og líka á svipuðum aldri. Þarna fæ ég útrás og næ að verða líkamlega þreytt á kvöldin svo það slokkni á mér eins og ljósi. Náði meira að segja að klára skúringarnar áður, þannig að núna er það námið sem situr á hakanum. Maður fyllist nú orku við að púla, ekki satt?

það var kominn tími til : )
(Ég seinustu daga, sófakartafla dauðans)
Nú er bara um að gera að hrista af sér slenið, skrapa siggið af sitjandanum og drulla sér af stað í átak nú í vetur. Koma svo jákvæðum snjóbolta af stað, því að ég hef verið að festast í einhvers konar vítahring af sleni og þreytu. Það gengur bara ekki þegar maður er bara hálfþrítugur en ekki langt gengin fram af grafarbakkanum. Nú er það bara ginseng extra strong og ekkert múður. Maður þarf alla sína krafta til að stunda fullt nám, vera með aukavinnu nokkra tíma á viku, eiga smá félagslíf og blogga svo herlegheitin.
(Týpískar feitabollur)
Typeos porkos
Er ekkert að nenna þessu!
Ég þurfti ekkert að mæta í skólann í dag því að kennarinn var veikur, er bara búin að vandræðast heima fyrir, vafra á netinu og svo framvegis.
Ég dett reglulega úr stuði við að dagbókast, t.d. pirrar mig stundum að vera svona tæknilega heft. Mig langar til að hafa svo dúndur flotta síðu mar...
Kemur vonandi með kalda vatninu.
leiterr
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)













