Me no likey ; (

  1. Sturtuhengi sem vefst utan um mann eins og filma utan um matarafganga
  2. Hælsæri
  3. Veðrið á Hvanneyri
  4. Dýnuna á rúminu hjá mér sem er úr 100% rolluull
  5. Klaufann mig
  6. Rafmagnaðar peysur sem klæja í þokkabót
  7. Smá rifnar neglur sem flækjast í öllu sem maður kemur við
  8. Sjónvarpsdagskránna á helgum
  9. Þvottavélina hans Stefáns
  10. Að týna eyrnalokkafestingum eða einum eyrnalokki
  11. Hálkubletti undir snjósköflum
  12. Rigning uppá við
  13. Það sem lítur út fyrir að vera fast land undir fótum en reynist síðan vera dulbúinn pollur og fóturinn fer á kaf- fínt færi fyrir stígvélaða köttinn


2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvernig er rigning upp á við??
Rach

Helgan sagði...

Ætli það sé ekki týpísk rigning hér á suð vestur horni landsins, ekki hægt einu sinni að vera með regnhlíf, hún fýkur bara upp. Þessi rigning fer inn um skálmar og ermar og nasir!