Jæja strumparnir mínir, ég er enn og aftur á leiðinni til Sódómu Reykjavík. Nú er tilefnið það að Jóhanna er mætt með sólbrennt andlit, (fyrir neðan húfu) og vill kíkja í menninguna. Það var ekki stungið upp á því að við skyldum kíkja út á lífið í Borgarfirðinum, o nei, -æ vónder vhæ? Ég hefði hvort sem er þurft að fara í vettvangsferð upp í Borgartún í Rvk. á mánudag, þannig að ég gisti bara auka nótt.
Gerum örugglega eitthvað rosa menningarlegt í kvöld eins og að kíkja á fíflin í Ölver eða í Klúbbinn við Gullinbrú sem stendur alltaf fyrir sínu. Nei bara djók, þesskonar staðir eru fyrir neðan okkar virðingu, við erum með VIP passa í röðinni á Rex og Hressó.
Frétt vikunnar er sú að nú er ég cirka 5 kílóum léttari en í jólafríinu, stefni á að halda þessu áfram og léttast um 1 kíló á viku, og eftir ár er ég komin með anorexíu útlitið, haldið að ég verði ekki sæt með alltof stóran haus og eyrnapinna búk? Nei, það verður að vera eitthvað til að klípa í, á svona stórbeinóttum líkama, held ég verði líka alltaf nokkuð vöðvuð, þannig að fyrirsætudraumurinn fór fyrir lítið ; P
Ekki taka neitt mark á þessum upp hugsunum, ég er bara jafn rugluð og ég hef alltaf verið.
Lag dagsins er Eistneska fluvélalagið -Halló, stesnarek asdkesa juma juma jei , *held að það verði að fjarlæga það með skurðaðgerð úr heilanum á mér, argh.
blogga líklegast eitthvað fyrir páska því það eru annarpróf á næstunni, og þá finnur maður sér alltaf e-ð annað dundurs en lærdóminn.
Bææææææææææææææææææææjóoooo
Bara ef að þér leiðist
Stundum er ég í vandræðum með mig og ramba inn á eitthvað, sumt getur verið ómaksins vert eins og þessi: http://www.barnaland.is/barn/12710/gullkorn/
Helgin
Þessi mynd er í miklu uppáhaldi, er búin að láta marga frussa upp á síðkastið, en þessi slær öllum við. Tekin í afmælishófi sem ég fór í á laugardagskvöldið. Ég tók því bara rólega og fékk mér bara 2var sinnum af bollunni. Tók nokkrar myndir og þið getið kíkt á myndasíðuna mína með því að klikka á myndina.
********Minni á gestabókina mína********
Myndarskapurinn á einu heimili!
Já, nú var sko kominn tími til að slaka aðeins á og vera heima hjá sér eina helgi eða svo. Mér leiðist sko ekkert hérna, er maður nokkurn tíma búinn með heimalærdóminn? Húsverkin kalla líka inn á milli, þvo nokkrar vélar, skúra skrúbba bóna... and so on. Eyddi föstudagskveldi í skilaverkefni, byrjaði svo daginn á því að gera hópverkefni sem við eigum ekkert að skila á næstunni, en við erum bara svo dugleg, ég og Helgi vinur minn. Hann rekur mig áfram þegar ég er kærulaus, eins konar mamma á ská!
Að því lokna skellti ég í tvær kökur, eina djúsí skúffuköku, er að pæla að færa afmælisbarninu sem bauð mér í afmæli í kvöld smá smakk, maður er dálítið fátækur námsmaður, en efast að hann eigi eftir að fúlsa við svona súkkúlaði bombu!
Gerði líka tvær hjónabandssælur, en ætla að leyfa Stefáni að njóta þegar hann kemur heim. Þið ættuð bara að sjá hollinguna á mér í augnablikunu, meðan ég bíð eftir kökunum. Með tóbaksklút á höfðinu ( svo það komi ekki hár, ojj), ermalausum útkastarabol (vegna hitans, if I can´t stand the heat, I get out of the kitchen, and fer í the tölvv) og með skræpótta svuntu um mig miðja, sem að húsbóndinn á heimilinu saumaði í 12 ára bekk ( fígúrur sem minna mig á Bubba Byggir).
Nú berst aldeilis bökunarilmurinn um íbúðina og ábyggilega út um Borgarfjörðinn, ætli maður geti nælt sér í einn bóndadurg eða sumarbústaðareiganda á lyktinni?
Er að nauðga diskinum með Keane, -ég fæ ekki leið á honum, hann rokkar feitt, þó hann sé frekar í rólegri kantinum.
Spurning dagsins er: nenni ég að vera í þessu partýi í kvöld, eða ætla ég að liggja eins og skata fyrir framan imbakassann? Ætli maður kíki ekki í smá stund svo að maður sé ekki stimplaður félagsskítur.
Kemur í ljós, smell u later dúllurnar mínar...

Þetta hljómar eitthvað svo íslenskt
Kíkið á þessa frétt, hún gæti alvega hafa gerst hér á landi!
http://www.ruv.is/main/view.jsp?branch=2574128&e342RecordID=98143&e342DataStoreID=2213589
http://www.ruv.is/main/view.jsp?branch=2574128&e342RecordID=98143&e342DataStoreID=2213589
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)