Já, nú var sko kominn tími til að slaka aðeins á og vera heima hjá sér eina helgi eða svo. Mér leiðist sko ekkert hérna, er maður nokkurn tíma búinn með heimalærdóminn? Húsverkin kalla líka inn á milli, þvo nokkrar vélar, skúra skrúbba bóna... and so on. Eyddi föstudagskveldi í skilaverkefni, byrjaði svo daginn á því að gera hópverkefni sem við eigum ekkert að skila á næstunni, en við erum bara svo dugleg, ég og Helgi vinur minn. Hann rekur mig áfram þegar ég er kærulaus, eins konar mamma á ská!
Að því lokna skellti ég í tvær kökur, eina djúsí skúffuköku, er að pæla að færa afmælisbarninu sem bauð mér í afmæli í kvöld smá smakk, maður er dálítið fátækur námsmaður, en efast að hann eigi eftir að fúlsa við svona súkkúlaði bombu!
Gerði líka tvær hjónabandssælur, en ætla að leyfa Stefáni að njóta þegar hann kemur heim. Þið ættuð bara að sjá hollinguna á mér í augnablikunu, meðan ég bíð eftir kökunum. Með tóbaksklút á höfðinu ( svo það komi ekki hár, ojj), ermalausum útkastarabol (vegna hitans, if I can´t stand the heat, I get out of the kitchen, and fer í the tölvv) og með skræpótta svuntu um mig miðja, sem að húsbóndinn á heimilinu saumaði í 12 ára bekk ( fígúrur sem minna mig á Bubba Byggir).
Nú berst aldeilis bökunarilmurinn um íbúðina og ábyggilega út um Borgarfjörðinn, ætli maður geti nælt sér í einn bóndadurg eða sumarbústaðareiganda á lyktinni?
Er að nauðga diskinum með Keane, -ég fæ ekki leið á honum, hann rokkar feitt, þó hann sé frekar í rólegri kantinum.
Spurning dagsins er: nenni ég að vera í þessu partýi í kvöld, eða ætla ég að liggja eins og skata fyrir framan imbakassann? Ætli maður kíki ekki í smá stund svo að maður sé ekki stimplaður félagsskítur.
Kemur í ljós, smell u later dúllurnar mínar...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
það er aldeilis myndaskapurinn á einu heimili!! Þú ert meiri húsmóðir en ég!
Kv úr Reykjavíkinni Kristín
Skrifa ummæli