Jæja, nú er maður aldeilis búinn að láta bloggið sitja á hakanum seinustu daga, enda er ég búin að vera á fullu í verkefnatörn. Í kvöld leyfði ég mér því að slaka aðeins á og horfa á imbakassann, uppáhaldið mitt, Fab5 var í gangi og þeir koma mér alltaf í gott skap. Ég hef annars ekkert frá merkilegu að segja í bili, var að setja inn nokkrar myndir á flickr, endilega kíkið á þær og kommentið. Ykkar HáEmm
p.s., svona fer fyrir þeim sem eru sóðar, taktu þetta til þín á Skerjunum, þessi mynd líkist ískyggilega því sem ég sá vaxa upp úr eldhússvaskinum hjá þér!

Engin ummæli:
Skrifa ummæli