Ætli þetta sé tilviljun??!!

Abraham Lincoln var kjörinn á þing 1846. John F. Kennedy var kjörinn á þing 1946.
Abraham Lincoln var kjörinn forseti 1860. John F. Kennedy var kjörinn forseti 1960.
Lincoln and Kennedy eru bæði 7 stafa nöfn.
Konur beggja misstu barn á meðan þau bjuggu í Hvíta húsinu.
Báðir voru skotnir á Föstudegi, -báðir voru skotnir í höfuðið.
Einkaritari Lincoln hét Kennedy.
Einkaritari Kennedy hét Lincoln.
Báðir voru myrtir af Suðurríkjamanni. Suðurríkjamaður tók við af þeim báðum.
Báðir sem tóku við hétu Johnson:
Andrew Johnson, sem tók við af Lincoln, var fæddur 1808.
Lyndon Johnson, sem tók við af Kennedy, var fæddur 1908.
John Wilkes Booth, sem myrti Lincoln, var fæddur 1839.
Lee Harvey Oswald, sem myrti Kennedy, var fæddur 1939.
Báðir morðingjarnir voru alltaf kallaðir sínu fulla nafni, nöfn þeirra beggja eru 15 stafir.
Lincoln var skotinn í 'Kennedy' leikhúsinu. Kennedy var skotinn í Lincoln bifreið.
Booth flúði úr leikhúsinu og fannst í vöruhúsi.
Oswald flúði úr vöruhúsinu og fannst í leikhúsi.
Booth og Oswald voru báðir myrtir áður en þeir voru dæmdir...

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Spúúúkíí!!! þetta hlýtur að vera eitt stórt samsæri, frekar áhugavert og skrítið!!
bæjó
Hildur

Nafnlaus sagði...

Tek undir það... frekar spúkí.

Sigrún sagði...

Njah, vil nú ekki vera leiðinleg og skemma spúkíið en mest af þessu er nú flökkusagnir... ;)

Helgan sagði...

Sigrún, komdu þá með almennilegar staðreyndir, sem stangast á við þessar!