Mætt norður með sjó, brunaði af stað eftir prófið á mánudag á ZZsubarunum ásamt henni Maríu Guðbjörgu formerly known as Ísfirðingur. Ekki wvandamálið þegar maður er kominn á pimpmobile þar sem verðmætasta stykkið er glansandi krómgræja. Maður fílar sig bara eins og fyrir áratug þegar maður sætti sig nú við hvaða kagga sem er, bara helst 4 hjól, vind og vatnsheldur. Hver getur gleymt Gulu þrumunni með hárblásara sem miðstöð, eða Silfraða geitungnum með eina stóra vinnukonu sem fór yfir alla framrúðuna? Skodilakk sem er enn á lífi, með pfaff saumavélamótorinn eða drullu brúna fasteignin á hjólum, sem að fasteignasalinn átti í 18 ár eða hér um bil? Depill sem var á seinasta snúning undir lok 20. aldar og er enn þarfasti þjónninn?!
Mæli eindregið með japanskri framleiðslu, endist von úr viti, sjáið bara bílaflotann hjá Dúa Didda málara, betri málikvarði finnst ekki, -sambærilegt við Möbelfakta draslprófunina hjá IKEA. Þessir pizzasendlar láta hvern part í bílnum finna fyrir því hvar Davíð keypti ölið (Tala af reynslu... lét nú bara ölið fara á reikninginn hjá mér hum hum).
Heyrðu nú mig, nú hefur svefngalsinn náð yfirhöndinni, best að hætta leik meðan hæst stendur og so on
Allt í gúddí vonandi, lesandi góði (mamma, grunar mig, að sé þessi eini lesandi)
Hasta la vista
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Jájá, verið að gera grín að þessum fína bíl sem Skodillac er. Orðinn níu ára gamall og virkar enn (næstum því). Maður verður bara að taka af stað í þriðja gír, svo getur maður sett í fjórða og ef maður lemur farþegann ítrekað í hnéð þá getur maður sett í fimmta:) Eðaldós
Skrifa ummæli