Mín er bara búin að vera í málningargallanum síðan ég kom heim, ekkert sérstaklega girnilegur galli, það eru alla vega 2 ef ekki 3 hús sem ég hef málað í þessum 80's jogging galla. Aðallega Faktorshúsið í Hæstakaupstað, svo sé ég líka litina frá mínum eigin kofa, og ekki má gleyma Gistiheimili móður minnar. Mér finnst ég sé búin að vera að mála nonstop í 5 ár, maður fær ekki einu sinni frið frá pennslunum í skólanum!! Kannski er þetta bara mín köllun og ég ætti bara að skella mér á Málarabrautina í Iðnskólanum og verða eins og Bjarndís II. Svo er líka bara hægt að verða bara ríkur og borga fólki fyrir þetta, held ég stefni bara frekar á það.
.........................................
Annars er allt gott að frétta af mér, ég nenni nú ekki að hanga í tölvunni (kannski eitthvað að gera með að þráðlausa netið hér er í hakki), nenni ekki að horfa á sjónvarpið og nenni mest að viðra hundskvikindið á kvöldin. Alveg merkilegt hvað líkamleg áreynsla gerir manni gottttt, maður vill helst bara fara að sofa löngu fyrir miðnætti, þá er sko bleik brugðið- ég var yfirleitt að sofna um 2 á Hvanneyri.
Talandi um Rokeyri, ég og Týra erum að flytja í kjallaraíbúð þar um miðjan Ágúst, þetta er gult plasthús. Bara alveg eins og Jóhönnu hús!
Persónulega finnst mér að það ætti að banna allar utanhússklæðningar sem eiga að heita viðhaldslausar, það má nú ekki leysa vind í grenndinni án þess að það komi bremsufar eða dæld í þessar klæðningar. Gott dæmi úr Bolungarvík þar sem Kristín og Sveina lentu í fjölbragðaglímu og allur bílskúrinn bar þess merki, svei mér þá ef að það var ekki hægt að sjá Buffaló lógóiðá röngunni þar að utan. Minnistætt líka hárflyksurnar sem fuku um stéttina í morgunsólinni, eða voru það gervihársfléttur?? Hljómar þetta ekki voðalega ´98? Held að við vorum að koma af Sixties balli og þetta kórónaði alveg þessa júní nótt. Best bara að fara ekkert lengra en Skarfasker, Hnífsdalur er líka alveg ágætur
Er hann ekki nett foxý?
http://www.davidwalliamsfans.com/Gallery.htm
Svei mér þá ef að það er ekki smá dass af Össuri P. Bjúgan?!
Sammála?
Commentin eru til þess að ég sé ekki bara að skrifa fyrir sjálfa mig, heldur til þess að fá utanaðkomandi viðbrögð.
Gestabókin er líka helvíti sniðug uppfinning
Svei mér þá ef að það er ekki smá dass af Össuri P. Bjúgan?!
Sammála?
Commentin eru til þess að ég sé ekki bara að skrifa fyrir sjálfa mig, heldur til þess að fá utanaðkomandi viðbrögð.
Gestabókin er líka helvíti sniðug uppfinning
Algarve Portúgal
Vorfílingurinn
Mín er bara búin að draga fram gallajakkann góða, árg. ´95. Gallaefni og vor minnir mig alltaf á Björn Teitson, B.T. Thunder. Hann mætti alltaf uppáklæddur í nankini þegar sólin skein, með Ray Ban sólgleraugu (kannski Lay-Baahn), þá vissi maður að sumarið væri á næsta leiti. Hann gerði þau tískumistök að vera bæði í gallajakka (vel hnepptur frá hálsi og niðurúr) og í gallabuxum samtímis. Svoleiðis er algjört nó nó, allavega samkvæmt stílistum! -nefni engin nöfn en fyrsti stafurinn er Læka Bugöt
-Ég er nú bara svo heppin að geta ekki lengur hneppt blessaða jakkanum, ekki einni einustu tölu, barnið vex en brókin ekki *nema hún sé úr spandexi eða lycra
Já þú meinar
Ég gat sofið með opinn gluggann í nótt! Það hefur varla verið hægt hér í vetur, seinustu vikurnar fjúka heilu sandhólarnir inn og heysáturnar, rigningin líkist sturtu eða þá það snjóar höglum ofan á lyklaborðið á tölvunni minni. Ekki frá því að ég hafi fengið óverdós af súrefni, er bara svona über hress.
Svo eru líka bara 3 dagar eftir af dvöl minni hér á Hvanneyri, seinasti skóladagurinn var í gær. Ef ég væri ekki svona mikill trassi og búin með öll skilaverkefnin mín, þá hefði ég farið strax eftir skóla.
-Helga in a nutshell
Svo eru líka bara 3 dagar eftir af dvöl minni hér á Hvanneyri, seinasti skóladagurinn var í gær. Ef ég væri ekki svona mikill trassi og búin með öll skilaverkefnin mín, þá hefði ég farið strax eftir skóla.
-Helga in a nutshell
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)

