Ég gat sofið með opinn gluggann í nótt! Það hefur varla verið hægt hér í vetur, seinustu vikurnar fjúka heilu sandhólarnir inn og heysáturnar, rigningin líkist sturtu eða þá það snjóar höglum ofan á lyklaborðið á tölvunni minni. Ekki frá því að ég hafi fengið óverdós af súrefni, er bara svona über hress.
Svo eru líka bara 3 dagar eftir af dvöl minni hér á Hvanneyri, seinasti skóladagurinn var í gær. Ef ég væri ekki svona mikill trassi og búin með öll skilaverkefnin mín, þá hefði ég farið strax eftir skóla.
-Helga in a nutshell
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli