Uppdeit

Mín er bara búin að vera í málningargallanum síðan ég kom heim, ekkert sérstaklega girnilegur galli, það eru alla vega 2 ef ekki 3 hús sem ég hef málað í þessum 80's jogging galla. Aðallega Faktorshúsið í Hæstakaupstað, svo sé ég líka litina frá mínum eigin kofa, og ekki má gleyma Gistiheimili móður minnar. Mér finnst ég sé búin að vera að mála nonstop í 5 ár, maður fær ekki einu sinni frið frá pennslunum í skólanum!! Kannski er þetta bara mín köllun og ég ætti bara að skella mér á Málarabrautina í Iðnskólanum og verða eins og Bjarndís II. Svo er líka bara hægt að verða bara ríkur og borga fólki fyrir þetta, held ég stefni bara frekar á það.
.........................................
Annars er allt gott að frétta af mér, ég nenni nú ekki að hanga í tölvunni (kannski eitthvað að gera með að þráðlausa netið hér er í hakki), nenni ekki að horfa á sjónvarpið og nenni mest að viðra hundskvikindið á kvöldin. Alveg merkilegt hvað líkamleg áreynsla gerir manni gottttt, maður vill helst bara fara að sofa löngu fyrir miðnætti, þá er sko bleik brugðið- ég var yfirleitt að sofna um 2 á Hvanneyri.
Talandi um Rokeyri, ég og Týra erum að flytja í kjallaraíbúð þar um miðjan Ágúst, þetta er gult plasthús. Bara alveg eins og Jóhönnu hús!
Persónulega finnst mér að það ætti að banna allar utanhússklæðningar sem eiga að heita viðhaldslausar, það má nú ekki leysa vind í grenndinni án þess að það komi bremsufar eða dæld í þessar klæðningar. Gott dæmi úr Bolungarvík þar sem Kristín og Sveina lentu í fjölbragðaglímu og allur bílskúrinn bar þess merki, svei mér þá ef að það var ekki hægt að sjá Buffaló lógóiðá röngunni þar að utan. Minnistætt líka hárflyksurnar sem fuku um stéttina í morgunsólinni, eða voru það gervihársfléttur?? Hljómar þetta ekki voðalega ´98? Held að við vorum að koma af Sixties balli og þetta kórónaði alveg þessa júní nótt. Best bara að fara ekkert lengra en Skarfasker, Hnífsdalur er líka alveg ágætur

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hahaha já hvernig væri að þú mundir bara helga Helga!! þig penslinum Helga Málarameistari :-)
Annars er gult plasthús á Hvanneyri??
Hilsen
Steik-Hildur