Ég heiti Tommi tómatur, trallalallala

Ég virðist ekki geta lært af reynslunni, ef maður er of gráðugur í sólargeisla þá brennur á manni skinnið! Ég má ekkert vera að því að sitja einhvers staðar úti í sólinni, þess vegna splæsi ég á mig einn og einn ljósatíma þegar er þörf á, eins og í morgun. Fór í einfaldan túrbótíma, en til að fá sem mest út úr því, lá ég öfugt á bekknum, -nefnilega með bakið uppi á fótabrekkunni og þess vegna var fésið á mér alveg upp við efri perurnar. Útkoman getur aldrei verið glæsileg, núna væri hægt að spæla begg og eikon framan á mér! tsishh
Annað:
*vera í alltof stuttum bol að straua, straujárnið brennur bumbuna, amk 2svar sinnum hennt mig
*valhoppa á ganginum í þvergötunni, þar sem lofthæðin er undir 2m og dyragötin enn lægri: kúla á hausinn. (skýrir hversvegna ég er alltaf úti á þekju)
*hlaupa eða bara labba upp stiga og alltí einu fara að pæla hvernig maður stígur hægri vinstri hægri vinstri og ruglast í taktinum og dettur, skeður oft og iðulega fyrir mig
*hlusta ekki að samtöl hjá fólki en heyri 1 orð og byrja að taka þátt í umræðunum út frá því án þess að hugsa og enginn veit hvað ég er að tala um
*sparka fótbolta út í garði á inniskónum, þeir fljúga beint upp á bílskúrsþak, hvað græðir maður á því að vera í einum skó? sparka bolta úti á stétt og rúlla með boltanum og detta beint á stéttina með andlitið
*12ára að bera út moggann, hálka úti, áskrifandi einn beið spenntur eftir að ég færði honum heitustu fréttirnar þann daginn og ég með blaðið í hendinni og önnur í hliðartösku og flýg beint á magann úti á götu fyrir framan manninn, skammaðist mín endalaust
*Óteljandi skiptin sem ég er búin að strippa að heima hjá mér og ekki dregið fyrir og grunnskólinn beint á móti...
*koma blindhaugafull heim af balli, hleypa hundinum út til að gera sitt, en drepast með græjurnar hátt stilltar, nágranni úr ekki næsta nágrenni hringir til að kvarta
*labba einhversstaðar úti í bæ og stíg óvart út fyrir gangstéttina og sný upp á fótinn og eyðilegg fallegu pleðurskóna og hálfur fóturinn lafir útúr
*gera sig fína og klæða sig í nælonsokka sem rifna svo, útaf nöglum eða siggi
*svolgra í sig einhverjum svalandi drykk sem fer annað hvort upp í nasir eða á bringuna
*labba yfir drullusvæði, skórnir verða eftir í leðjunni og maður stígur á sokkunum í drullusvað og fattar ekki alveg strax (nokkrum sinnum skeð)

ekki er nú öll vitleysan eins, ég þykist nú vita að þið sem þekkið mig kunnið fleiri klaufasögur af mér, endilega setja það inn í kommentin, get svo gefið út hljóðbók með sögum af mér og undirspil með laginu úr Tékknesku brúðuköllunum!
Metsöluplata þessi jólin kannski?

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

og ætli þú hafir ekki einhvern tímann runnið til á fiskroði eða einhverju álíka skemmtilegu í frystihúsinu í den :-)))hahaha

Nafnlaus sagði...

Spurning um að breyta nafninu þínu í Bríet Jónsdóttir ;)