Versló

Jæja, nú er það ákveðið, ég, Eyrún og María Guðbjörg ætlum á Neistaflug keyrandi. Ég er aldeilis búin að vera á faraldsfæti frá því nú í vor.
1. Keyrði vestur í byrjun maí eina helgi
2. Var á Ísafirði í nokkra daga eftir að ég var búin í skólanum
3. Flaug suður og svo beint út til Portúgal í lok maí
4. Var á Ísafirði í c.a. 10 daga að mála og fór svo beint á Hvanneyri í viku
5. Fór vestur í opnunarhóf brúðarsvítunnar og var í nokkra daga.
6. Var að vinna í 2 vikur hjá skrúðgarðyrkjumeistara á höfuðborgarsvæðinu
7. -ætla að vera kjurr fram að verslunarmannahelgi! Neskaupstaður beware
8. -Isafjordur city í nokkra daga eftir versló
9. -12.ágúst byrjar skólinn
10. -seinasta helgin í ágúst hittumst við úr árg ´79 á Ísafirði
11. -Systir mín fjölgar mannkyninu enn og aftur í haust: ég verð að gjöra svo vel að mæta í skírn!

Krabbinn í mér þolir lítið svona flakk, sumarið 2006 ætla ég að fara út með bekkjarsystkinum til evrópu í c.a. 2 vikur strax á eftir skóla. Held ég nenni ekki að ferðast mikið meira það sumar, en á samt alveg eftir að skoða suður hluta Vestfjarða og Snæfellsnes. Finnst skipta meira máli að ná að þéna alvöru mónei í 2-3 mánuði!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæ hó! hvar ertu ní stödd á landinu kerla??
Verðum að fara að hittast bráðlega :-)
Kveðja úr borg óttans,
Hildur