Jæja, nú fer að styttast í það að ég næli mér í eitt stykki Bsc gráðu, líklegast næsta vor eða haust. Ég og brautarstjórinn settumst niður og ræddum um hvað ég gæti tekið sem lokaverkefni. Niðurstaðan eftir miklar pælingar á mínu áhugasviði er sú að ég ætla að greina Tungudal, í Skutulsfirði, sanka að mér gögnum af staðnum, heimildum og öðru, og koma með tillögur að úrbótum. Notast við útlenskar aðferðir og heimfæra þær að íslenskum aðstæðum. Þarna er ýmislegt að gerast en hvað má betur fara? Hvað laðar fólk að og rífur það af rassgatinu, upp úr sófanum og fær það til að stunda útivist?
Fylgist með á næsta ári, niðurstöðurnar verða kynntar og ég þarf að standa fyrir máli mínu.
Spennandi...
Lag dagsins: á skíðum skemmti ég mér tralllala með einhverri tjellingu
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli