Party Star, oh hvað ég verð vinsæl í partýum hér eftir



Keypti mér Party Star í símann minn hjá honum Gunnlaugi stjörnuspekingi og sló inn fæðingardaginn minn. Þetta er persónulýsing af mér. Svei mér þá ef að þetta er ekki bara nokkuð nálægt sannleikanum, eða hvernig ég ætti að haga mér. Hér kemur lýsingin á Helgu Þuríði:


Grunneðli: Ég er víst útsjónasöm, næm og umhyggjusöm, en íhaldssöm og varkár. Þarf að eiga góða fjölskyldu og stunda útivist til að líða vel (Sól í krabba, sólin stjórnar grunneðlinu). Nú er bara að fara að ættleiða börn í öllum regnbogans litum eins og fræga fólkið til þess að eignast mína eigin fjölskyldu, því að ættartréð mitt er orðið ansi gisið. Drífa svo krakkaskarann út úr húsi, í fjallgöngur með liðið.

Tilfinningar og heimili: fæddist þegar tunglið var í fiskamerkinu, það þýðir að ég er næm og með sterkt ímyndunarafl. Þarf sveigjanleika í sambandi við heimili og lífsstíl. Skapandi og fjölhæf.
Engar nýjar upplýsingar fyrir mér

Hugsun: hrein og bein í tali og tjáningu. Föst fyrir og ákveðin hvað varðar skoðanir og viðhorf. Hugsjónakona. Stolt og stórhuga. (Merkúr í ljónsmerkinu) Þetta er allt að koma hjá mér. Langar að mæta Ásgeiri Kolbeins sem er rauðka í afneitun og spyrja hann: Does the carpet match the drapes?? Eða er það bara Kojak stíllinn þarna fyrir neðan belti?

Ástin: næm og tilfinningarík en á til að setja upp varnarskel (þykk skel eins og skeldýrum sæmir). Þarf öryggi.(Öllu má nú öfgera, Helga mín) Tryggur vinur og verndar þá sem að henni þykir vænt um (Venus var statt í krabbanum 14.júlí 1979)

Vinna: fjölhæf og sveigjanleg. Þarf að vera á ferðinni og fást við fjölbreytt verkefni. (Er með fullkomið djobb nú þegar) Pælari sem vill leita þekkinga og miðla upplýsingum. (Hvenær er maður orðinn fullnuma?, gott að halda sér við efnið og læra alla ævi (Mars í tvíburum)


það er bara svona...

Taktu þetta til þín

ADHD hjá fullorðnum

Úr ritinu Understanding, Supporting and Improving Outcomes for Individuals with ADHD

Flestir þeir sem greinast með ADHD (athyglisbrest með/án ofvirkni) glíma alla ævi við ýmis einkenni vandans og í mismunandi miklum mæli. Mikill hluti fullorðinna sem greinst hefur með ADHD glímdi árum saman við röskun sem ekki var vitað að væri til. Þessi hópur hefur því orðið að búa við ýmsar rangar greiningar og hefur oft fengið á sig rangan og óréttlátan stimpil vegna misskilnings.

Stundum áttar fullorðið fólk sig á að það er með einkennin sjálft og leitar greiningar eftir að barn þess hefur greinst með ADHD. Algengt er þó að fullorðnir haldi bara áfram að glíma við þau einkenni sem hamla þeim í leik og starfi án þess að leita sér hjálpar í frumgreiningu, greiningu og viðeigandi meðferð.

Vitað er að ADHD geta fylgt ýmsir örðugleikar sem rekja má til slakrar sjálfsstjórnar og hæfileikans til að stjórna atferli sínu. Hér verða talin upp nokkur þeirra atriða sem margir fullorðnir með ADHD glíma við:

  • Gagnrýni og neikvæð endurgjöf
  • Neikvæðar tilfinningar (sektarkennd, skömm, léleg sjálfsvirðing, reiði, örvænting)
  • Erfiðleikar með skipulag og tímastjórnun
  • Félagslegir örðugleikar og samskiptavandi
  • Fjárhagsleg vandræði
  • Tíð vinnuskipti
  • Erfitt að vinna sig upp í starfi
  • Vandræði á vinnustað
  • Óánægja í starfi (rangt starf valið)
  • Nær ekki þeim árangri í starfi sem við má búast
  • Þunglyndi, angist og aðrar persónuleikaraskanir og námsörðugleikar eru algengari en hjá samanburðarhópi
  • Notkun og misnotkun vímugjafa algengari en hjá samanburðarhópi
  • Sambúðarvandamál
  • Ala þarf upp eitt eða fleiri börn með ADHD og jafnvel fylgiraskanir líka þótt fólk hafi í raun nóg með sjálft sig

Svartsýn


Djöfullinn maður, nú er útlitið svart.
Ég á engin föt, bara svarta hrúgu inni í skáp og þetta rennur allt saman í eina heild.
Ég verð að fara og kaupa mér föt í sjálflýsandi litum svo það sé hægt að klæða sig í eitthvað...bara eitthvað

Ölver og co

Væri til í bjór þegar ég svona girnilega auglýsingu

Hvað er nafnaló?

Ló eða kusk í nafla samanstendur einkum af stökum trefjum úr fatnaði ásamt svolitlu af dauðum húðfrumum og líkamshárum. Sviti límir svo þessi efni saman í hnoðra. Samkvæmt rannsóknum Karls Kruszelnickis við Háskólann í Sydney í Ástralíu, virðist naflaló frekar berast upp frá nærfötum frekar en niður frá skyrtum og bolum öfugt við það sem mætti ætla. Flutningurinn stafar af núningi húðar við nærföt og í kjölfarið togi líkamshára í stakar trefjar úr nærfötunum upp í naflann.

Leyfið börnunum að koma til mín

Stjörnuspá

KrabbiKrabbi:
Hvort sem þín eigin börn dýrka þig og dá eða bara vinir þínir sem líta upp til þín, þá er það þessi umhyggjusama ára þín sem dregur fólk að þér.

Re-mix

Stenka


Ég lykta svo illa að ég prufaði nýjan ilm í gær sem ég held barasta sé ekkert svo slæmur. Virkar samt ekki sem veiðivatn þó...
-þetta er svona unisex ilmur

Rachel: See? Unisex.
Joey: Maybe *you* need sex. I just had it a few days ago.
Rachel: No, Joey, U-N-I-sex.
Joey: I wouldn't say no to that.

?

Stjörnuspá

KrabbiKrabbi: Nú er mál að gera áhugamálið að atvinnunni. Annars er andlega heilsa þín í hættu.

Smokin´

Mig dreymdi svaka draum, maður. Ég var að reykja á fullu þessar nýju sígarettur sem daninn hannaði. Þetta var svo gott en verst að ég reyki ekki í raunveruleikanum...kannski maður fari að taka upp á því fyrst að þetta er svona gott.

Polska Olga


Sá eina pólska í dag. Í fínum holdum alveg þannig séð, engin aukakíló eða ástarhöldur en mín var klædd í magabuxur sem náðu rétt að lífbeininu og svo í stuttan bol.
Það getur verið að þessi hafi einhvern tímann gengið með barn og fengið svona svaka húðslit en ég veðja frekar á þykka, loðna sportrönd sem hún skartaði þar sem skein í bert skinn!

þegar stórt er spurt

ætli það sé sniðugt að maður mundi saumavélina undir áhrifum?
hickup***

nei, ætli það. Frekar en að reyna að hjóla...

ahh, 11 ára c.a.



bekkjarpartý/saumaklúbbar hjá gelgjunum um 1991

Home alone

hvað á maður svosum að gera af sér þegar maður er einn í kotinu? í gamla daga vorum við systur kannski í sitthvoru lagi einar heima og þá helltist yfir mann sú tilfinning um leið og útidyrahurðinni var lokað, -hvað á maður nú að gera af sér?? fikta í græjunum, taka myndir á gömlu filmuvélina með flasskubbnum, eða hvað annað sem var bannað að gera í foreldra viðurvist...

held ég bara hangi á netinu á milli þess sem ég strauja rúmföt og skipti á rúmum. Kannski maður gisti í svítunni um hvítasunnuhelgina?

Svo eltist maður og smekkurinn breyttist

Böbbels


Bubbles and Mr Hutton

Bubbles: Are you a married man, Mr Hutton?

Mr Hutton: Yes, I am.

Bubbles: And yet you allow yourself to be alone in a room with a rather beautiful woman. That's very dangereuse, don't you think?

Mr Hutton: I just really need the cheque.

Bubbles: Very clever, darling. I'm sure we can come to some sort of arrangement, Mr Hutton.

Hlýt að hafa þjáðst af súrefnisskorti á þessum tíma...

ég dansa til að gleyma!

17.maí

Í dag er þjóðhátíðardagur Norðmanna, þá skulum við samfagna þeim í norska húsinu í Hæstakaupstað. Verið velkomin og ég skal fóðra ykkur að innan!

Veit bara um 5.maí í Mexíkó, 5.júní dana, seytjánda júní okkar, 4.júlí kana og 14.júlí frakka og þá ætla ég sko að halda upp á mitt afmæli...

Vorhreingerning 2007

Já loksins búin að gera hreint fyrir mínum dyrum enda komin 2 ár síðan seinast. Dustaði ryk og kusk, smá köngulóarvef og svei mér þá ef að það flugu ekki 2-3 leðurblökur út!

Fékk mér síðan bananasplitt í verðlaun...

Victoria

Social Worker: Vicky, where is your baby?
Vicky Pollard: Swapped it for a Westlife CD.
Social Worker: Vicky, how could you do such a thing?
Vicky Pollard: I know. They're rubbish.

Vicky Pollard: Stop giving me evils!

Vicky Pollard: Anyway don't listen to her coz everyone knows her fanny goes sideways

Teacher: [Vicky has walked out of the class and left the pram with her baby in behind] Vicky aren't you going to take your baby?
Vicky Pollard: No don't worry I've got loads at home

Þráðlaus net valda vonbrigðum

Það var frekar rólegt um borð í togaranum Velti norður af landinu, þar sem hann hefur verið við þráðlausar karfaveiðar frá því í janúarbyrjun.

„Auðvitað eru þetta vonbrigði - það er alltaf leiðinlegt þegar ný tækni, sem miklar vonir eru bundnar við og búið er að leggja mikla vinnu í að þróa og eyða gríðarlegum fjármunum í bregst,“ sagði Eyjólfur Eyjólfsson, veiðafærasérfræðingur, en tilraunir með þráðlaus net við veiðar í íslenskri lögsögu hafa lítinn sem engan árangur borið.

Að sögn Eyjólfs verða veiðarnar lagðar af með öllu um næstu mánaðamót og þráðlaus netbúnaður fjarlægður úr þeim 15 togurum sem tóku þátt í tilrauninni.