Þráðlaus net valda vonbrigðum

Það var frekar rólegt um borð í togaranum Velti norður af landinu, þar sem hann hefur verið við þráðlausar karfaveiðar frá því í janúarbyrjun.

„Auðvitað eru þetta vonbrigði - það er alltaf leiðinlegt þegar ný tækni, sem miklar vonir eru bundnar við og búið er að leggja mikla vinnu í að þróa og eyða gríðarlegum fjármunum í bregst,“ sagði Eyjólfur Eyjólfsson, veiðafærasérfræðingur, en tilraunir með þráðlaus net við veiðar í íslenskri lögsögu hafa lítinn sem engan árangur borið.

Að sögn Eyjólfs verða veiðarnar lagðar af með öllu um næstu mánaðamót og þráðlaus netbúnaður fjarlægður úr þeim 15 togurum sem tóku þátt í tilrauninni.

Engin ummæli: