Hvað er nafnaló?
Ló eða kusk í nafla samanstendur einkum af stökum trefjum úr fatnaði ásamt svolitlu af dauðum húðfrumum og líkamshárum. Sviti límir svo þessi efni saman í hnoðra. Samkvæmt rannsóknum Karls Kruszelnickis við Háskólann í Sydney í Ástralíu, virðist naflaló frekar berast upp frá nærfötum frekar en niður frá skyrtum og bolum öfugt við það sem mætti ætla. Flutningurinn stafar af núningi húðar við nærföt og í kjölfarið togi líkamshára í stakar trefjar úr nærfötunum upp í naflann.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli