
Keypti mér Party Star í símann minn hjá honum Gunnlaugi stjörnuspekingi og sló inn fæðingardaginn minn. Þetta er persónulýsing af mér. Svei mér þá ef að þetta er ekki bara nokkuð nálægt sannleikanum, eða hvernig ég ætti að haga mér. Hér kemur lýsingin á Helgu Þuríði:
Grunneðli: Ég er víst útsjónasöm, næm og umhyggjusöm, en íhaldssöm og varkár. Þarf að eiga góða fjölskyldu og stunda útivist til að líða vel (Sól í krabba, sólin stjórnar grunneðlinu). Nú er bara að fara að ættleiða börn í öllum regnbogans litum eins og fræga fólkið til þess að eignast mína eigin fjölskyldu, því að ættartréð mitt er orðið ansi gisið. Drífa svo krakkaskarann út úr húsi, í fjallgöngur með liðið.
Tilfinningar og heimili: fæddist þegar tunglið var í fiskamerkinu, það þýðir að ég er næm og með sterkt ímyndunarafl. Þarf sveigjanleika í sambandi við heimili og lífsstíl. Skapandi og fjölhæf.
Engar nýjar upplýsingar fyrir mér
Hugsun: hrein og bein í tali og tjáningu. Föst fyrir og ákveðin hvað varðar skoðanir og viðhorf. Hugsjónakona. Stolt og stórhuga. (Merkúr í ljónsmerkinu) Þetta er allt að koma hjá mér. Langar að mæta Ásgeiri Kolbeins sem er rauðka í afneitun og spyrja hann: Does the carpet match the drapes?? Eða er það bara Kojak stíllinn þarna fyrir neðan belti?
Ástin: næm og tilfinningarík en á til að setja upp varnarskel (þykk skel eins og skeldýrum sæmir). Þarf öryggi.(Öllu má nú öfgera, Helga mín) Tryggur vinur og verndar þá sem að henni þykir vænt um (Venus var statt í krabbanum 14.júlí 1979)
Vinna: fjölhæf og sveigjanleg. Þarf að vera á ferðinni og fást við fjölbreytt verkefni. (Er með fullkomið djobb nú þegar) Pælari sem vill leita þekkinga og miðla upplýsingum. (Hvenær er maður orðinn fullnuma?, gott að halda sér við efnið og læra alla ævi (Mars í tvíburum)
það er bara svona...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli