ADHD hjá fullorðnum
Úr ritinu Understanding, Supporting and Improving Outcomes for Individuals with ADHD
Flestir þeir sem greinast með ADHD (athyglisbrest með/án ofvirkni) glíma alla ævi við ýmis einkenni vandans og í mismunandi miklum mæli. Mikill hluti fullorðinna sem greinst hefur með ADHD glímdi árum saman við röskun sem ekki var vitað að væri til. Þessi hópur hefur því orðið að búa við ýmsar rangar greiningar og hefur oft fengið á sig rangan og óréttlátan stimpil vegna misskilnings.
Stundum áttar fullorðið fólk sig á að það er með einkennin sjálft og leitar greiningar eftir að barn þess hefur greinst með ADHD. Algengt er þó að fullorðnir haldi bara áfram að glíma við þau einkenni sem hamla þeim í leik og starfi án þess að leita sér hjálpar í frumgreiningu, greiningu og viðeigandi meðferð.
Vitað er að ADHD geta fylgt ýmsir örðugleikar sem rekja má til slakrar sjálfsstjórnar og hæfileikans til að stjórna atferli sínu. Hér verða talin upp nokkur þeirra atriða sem margir fullorðnir með ADHD glíma við:
- Gagnrýni og neikvæð endurgjöf
- Neikvæðar tilfinningar (sektarkennd, skömm, léleg sjálfsvirðing, reiði, örvænting)
- Erfiðleikar með skipulag og tímastjórnun
- Félagslegir örðugleikar og samskiptavandi
- Fjárhagsleg vandræði
- Tíð vinnuskipti
- Erfitt að vinna sig upp í starfi
- Vandræði á vinnustað
- Óánægja í starfi (rangt starf valið)
- Nær ekki þeim árangri í starfi sem við má búast
- Þunglyndi, angist og aðrar persónuleikaraskanir og námsörðugleikar eru algengari en hjá samanburðarhópi
- Notkun og misnotkun vímugjafa algengari en hjá samanburðarhópi
- Sambúðarvandamál
- Ala þarf upp eitt eða fleiri börn með ADHD og jafnvel fylgiraskanir líka þótt fólk hafi í raun nóg með sjálft sig
Engin ummæli:
Skrifa ummæli